Siðareglur

Siðareglur Sigra sjúkraþjálfunar

Síðast uppfært: Febrúar 2026

Tilgangur og markmið

Siðareglur þessar eru settar fram til að lýsa faglegum og siðferðilegum viðmiðum fyrir störfum sjúkraþjálfara hjá Sigra. Markmiðið sjúkraþjálfunar er að efla og viðhalda líkamlegri og andlegri færni, heilsu og starfshæfni og stuðla þannig að virkri þátttöku og bættum lífsgæðum notenda þjónustu sjúkraþjálfara.

Umfang

Nær til alls starfsfólks, sjúkraþjálfara og þriðja aðila sem starfa fyrir Sigra sjúkraþjálfun.

Almenn regla

Sjúkraþjálfarar hjá Sigra starfa af fagmennsku, ábyrgð og heiðarleika og virðingu við notendur þjónustunnar í samræmi við lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 32/2012, lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997, lög um sjúkraskrár og lög um persónuvernd nr. 90/2018. Sjúkraþjálfarar sem starfa hjá Sigra eru með gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis og starfa innan þess starfssviðs sem leyfið nær til.

Hlutverk sjúkraþjálfara hjá Sigra

  • Sjúkraþjálfari býr yfir sérþekkingu á eðlilegum hreyfingum líkamans og greiningu á frávikum frá þeim.
  • Sjúkraþjálfari starfar við endurhæfingu, hæfingu, forvarnir og fræðslu.
  • Sjúkraþjálfari byggir meðferð og ráðgjöf á faglegri þekkingu, klínísku mati og bestu fáanlegum gögnum.
  • Sjúkraþjálfari bera ábyrgð á eigin starfi og að viðhalda þekkingu og faglegri hæfni með símenntun í samræmi við þróun greinarinnar.

Velferð notenda þjónustu sjúkraþjálfara og réttindi

  • Sjúkraþjálfari veitir bestu sjúkraþjálfun sem völ er á og ber velferð, öryggi og hagsmuni notanda ávallt í fyrirrúmi.
  • Þjónusta sjúkraþjálfara fer fram með upplýstu samþykki notanda, þar sem notandi er veittar skýrar upplýsinga um markmið, framkvæmd, mögulega áhættu og fjárhagslegar hlið samskipta þeirra.
  • Sjúkraþjálfari upplýsir notanda og leiðbeinir um meðferðarúrræði og réttindi sem til greina koma. Hann vísar notanda annað, telji sjúkraþjálfari það hag notandans.
  • Sjúkraþjálfari virðir sjálfstæði og rétt notanda að hafna eða hætta meðferð.

Ef þig vantar frekari upplýsingar um siðareglur okkar hafðu samband við okkur á sigra@sjukrathjalfari.is.