Starfsfólk

Kynntu þér teymið okkar

Hjá Sigra sjúkraþjálfun starfar frábær hópur sjúkraþjálfara með víðtæka reynslu og sérhæfingu.

Reykjavík

Ari Már Fritzson

Sjúkraþjálfari BSC

Útskrifaður 2007 frá sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands. Vann hjá Gáska sjúkraþjálfun frá 2007 til 2019. Hefur unnið með ýmsum íþróttaliðum aðallega í handbolta og fótbolta, bæði félagsliðum og landsliðum. Áhugasvið eru mjaðmavandamál og vandamál neðri útlima en sinni allri sjúkraþjálfun. Regluleg endurmenntun. Er meðal annars með nálastungumeðferð.

Sjá nánar
Reykjavík

Bjartmar Birnir

Sjúkraþjálfari BSC

Útskrifaður íþróttafræðingur árið 2006 og sjúkraþjálfari árið 2012 frá Háskóla Íslands. Vann hjá Gáska sjúkraþjálfun frá árunum 2012-2019 og Sjúkraþjálfun Reykjavíkur 2019-2021. Starfaði sem sjúkraþjálfari meistaraflokks KR í körfuknattleik 2012-2020 en starfar nú sem sjúkraþjálfari körfuknattleiksdeildar Vals. Hefur einnig unnið með yngri landsliðum KKÍ og A-landsliði BLÍ. Regluleg endurmenntun. Áhugasvið innan sjúkraþjálfunar er almenn sjúkraþjálfun og líkamleg heilsa.

Sjá nánar
ReykjavíkSuðurnes

Drífa Þorvaldsdóttir

Sjúkraþjálfari BSC

Útskrifaðist með BSC í sjúkraþjálfun frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi árið 2022. Vann hjá Karolinska sjúkrahúsinu í tvö ár, tímabil 2022-2024, bæði á bæklunarlækninga- og áfalladeildinni en einnig sem sjúkraþjálfari fyrir starfsfólk spítalans. Áhugasvið er breitt og sinnir allri almennri sjúkraþjálfun. Regluleg endurmenntun, meðal annars tekið áfanga í íþróttalækningum og íþróttasálfræði.

Sjá nánar
Suðurnes

Fjóla Björg Ragnarsdóttir

Sjúkraþjálfari MSC

Útskrifaðist með MS í sjúkraþjálfun frá HÍ árið 2019. Vann hjá Gáska sjúkraþjálfun frá 2019-2024. Hefur jafnframt starfað sem sjúkraþjálfari á Sóltúni hjúkrunarheimili frá árinu 2019. Áhugasvið eru m.a. öldrunarsjúkraþjálfun, parkinsonþjálfun, sjúkraþjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu, kvenheilsa, endurhæfing eftir liðskipti og stoðkerfiseinkenni frá hrygg.

Sjá nánar
Suðurnes

Guðný Hulda Valdimarsdóttir

Sjúkraþjálfari MSC

Útskrifaðist með MS í sjúkraþjálfun frá HÍ árið 2025. Áhugasvið er breitt og sinnir allri almennri sjúkraþjálfun.

Sjá nánar
Reykjavík

Ómar Atli Sigurðsson

Sjúkraþjálfari MSC

Útskrifaðist 2025 með meistaragráðu, MS, í sjúkraþjálfun frá HÍ. Hef unnið sjúkraþjálfunarverkefni með ýmsum íþróttaliðum, aðallega með ÍR og Fylki og einnig með yngri landsliðum Íslands í knattspyrnu. Þar að auki hef ég starfað við knattspyrnuþjálfun og styrktarþjálfun hjá ÍR, Fylki og Stjörnunni frá 2019. Ég er einnig með BS gráðu í íþrótta-og heilsufræði frá Háskóla Íslands og með UEFA B þjálfaragráðu. Áhugasvið innan sjúkraþjálfunar er almenn sjúkraþjálfun og íþróttasjúkraþjálfun.

Sjá nánar
Reykjavík

Sævar Ómarsson

Sjúkraþjálfari BSC

Útskrifaðist 2009 frá sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands. Vann hjá Gáska sjúkraþjálfun í 10 ár, á tímabilinu 2009-2019. Hefur unnið með ýmsum íþróttaliðum í fótbolta, handbolta og körfubolta, hjá félagsliðum og yngri landsliðum. Áhugasviðið er vítt og sinnir allri almennri sjúkraþjálfun.

Sjá nánar
ReykjavíkSuðurnes

Sveinn Sveinsson

Sjúkraþjálfari MTC

Sveinn hefur sérhæft sig í meðhöndlun á bak og háls vandamálum, höfuðverkjum og afleiðingum umferðarslysa. Sveinn, hefur starfað við sjúkraþjálfun frá 1995. Með sérhæft nám í Manual Therapy sem er sérhæfð skoðun og meðferð á hrygg og útlimaliðum.

Sjá nánar
Suðurnes

Tanía Björk Gísladóttir

Sjúkraþjálfari MSC

Útskrifaðist með MS í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 2025. Menntaður jógakennari með almenn jógakennararéttindi, Yin jóga og barnajóga. Starfaði á sjúkraþjálfunardeild Hrafnistu í Reykjanesbæ á árunum 2024-2025. Sinnir almennri sjúkraþjálfun og hefur sérstakan áhuga á öndunar- og lungnasjúkraþjálfun, barnasjúkraþjálfun, bandvefssjúkdómum (m.a. EDS/hEDS), POTS og jafnvægisvandamálum. Veitir einnig nálastungumeðferð.

Sjá nánar

Tímabókun

Viltu bóka tíma?

Fylltu út formið og við höfum samband við þig.