Siðareglur Sigra sjúkraþjálfun
Tilgangur og markmið
Siðareglur þessar eru settar fram til að lýsa faglegum og siðferðilegum viðmiðum fyrir störfum sjúkraþjálfara hjá Sigra. Markmiðið sjúkraþjálfunar er að efla og viðhalda líkamlegri og andlegri færni, heilsu og starfshæfni og stuðla þannig að virkri þátttöku og bættum lífsgæðum notenda þjónustu sjúkraþjálfara.
Umfang
Nær til alls starfsfólks, sjúkraþjálfara og þriðja aðila sem starfa fyrir Sigra sjúkraþjálfun.
Almenn regla
Sjúkraþjálfarar hjá Sigra starfa af fagmennsku, ábyrgð og heiðarleika og virðingu við notendur þjónustunnar í samræmi við lög um heilbrigðisstarfsmenn nr. 32/2012, lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997, lög um sjúkraskrár og lög um persónuvernd nr. 90/2018.
Sjúkraþjálfarar sem starfa hjá Sigra eru með gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis og starfa innan þess starfssviðs sem leyfið nær til.
Hlutverk sjúkraþjálfara hjá Sigra
- Sjúkraþjálfari býr yfir sérþekkingu á eðlilegum hreyfingum líkamans og greiningu á frávikum frá þeim.
- Sjúkraþjálfari starfar við endurhæfingu, hæfingu, forvarnir og fræðslu.
- Sjúkraþjálfari byggir meðferð og ráðgjöf á faglegri þekkingu, klínísku mati og bestu fáanlegum gögnum.
- Sjúkraþjálfari bera ábyrgð á eigin starfi og að viðhalda þekkingu og faglegri hæfni með símenntun í samræmi við þróun greinarinnar.
Velferð notenda þjónustu sjúkraþjálfara og réttindi
- Sjúkraþjálfari veitir bestu sjúkraþjálfun sem völ er á og ber velferð, öryggi og hagsmuni notanda ávallt í fyrirrúmi.
- Þjónusta sjúkraþjálfara fer fram með upplýstu samþykki notanda, þar sem notandi er veittar skýrar upplýsinga um markmið, framkvæmd, mögulega áhættu og fjárhagslegar hlið samskipta þeirra.
- Sjúkraþjálfari upplýsir notanda og leiðbeinir um meðferðarúrræði og réttindi sem til greina koma. Hann vísar notanda annað, telji sjúkraþjálfari það hag notandans.
- Sjúkraþjálfari virðir sjálfstæði og rétt notanda að hafna eða hætta meðferð.
Virðing og trúnaður
- Notandi þjónustu sjúkraþjálfara skal ávallt njóta virðingar, jafnræðis og faglegts viðmóts sjúkraþjálfara og annarra stafsfólks Sigra.
- Sjúkraþjálfari fer ekki í manngreiningarálit og mismunun af nokkru tagi er óheimil.
- Sjúkraþjálfari er bundinn þagnarskyldu og sýnir notanda, aðstandaendum þeirra eða öðrum viðskiptavinum fullan trúnað í hvívetna í samræmi við persónuverndarstefnu Sigra.
- Sjúkraþjálfari skal ávallt viðhalda skýrum faglegum mörkum í samskiptum og við meðferð. Hann misnotar ekki trúnað eða stöðu sína.
Samvinna og heiðarleiki
- Sjúkraþjálfari vinnur í samvinnu við annað heilbrigðisstarfsfólk þegar það er notanda þjónustunnar til hagsbóta.
- Upplýsingagjöf frá sjúkraþjálfara eða starfsfólki skal vera heiðarleg og ekki villandi.
- Gjaldskrá og skilmálar eru skýrir og aðgengilegir
- Umfjöllun sjúkraþjálfara um vöru og þjónustu skal vera fagleg og hann skal ekki halda fram yfirburðum einnar vöru eða þjónustu umfram aðra.
Fyrir hönd Sigra sjúkraþjálfun
Sveinn Sveinsson framkvæmdastjóri Sigra
27.01.2026
